Fasismi

Axarvöndurinn var tákn valdumboðs í Rómaveldi. Hann var gerður að tákni fasistahreyfinga um alla Evrópu.

Fasismi er heiti á stjórnmálahugmyndafræði og heimspeki sem byggir á því megin inntaki að þjóð sé ein heild þar sem þjóðríkið, stofnanir samfélagsins og fólkið sé eitt og það sama. Fasismi felur í sér einræðissinnaða stjórnmálastefnu og er í andstöðu við lýðræði og ótakmarkað einstaklingsfrelsi. Hugmyndafræði fasismans byggir að mestu á samsömun ríkis og þjóðar, það er algjöran samruna stofnana ríkisins við fólkið sem þjóðin samanstendur af. Fasismi upphefur rétt ríkisins til ótakmarkaðra afskipta af lífi einstaklingsins, og andstöðu við stéttabaráttu, vegna þess er fasismi álitin tilheyra alræðissinnuðum stjórnmálastefnum.[1]

  1. Hrafnkell Tjörvi Stefánsson. „Hvað er fasismi?“. Vísindavefurinn 13.11.2003. (Skoðað 6.6.2014).

© MMXXIII Rich X Search. We shall prevail. All rights reserved. Rich X Search