Vestræn heimspeki Heimspeki 20. aldar, Heimspeki 21. aldar | |
---|---|
Nafn: | Philippa Ruth Foot |
Fædd: | 3. október 1920 |
Látin: | 3. október 2010 (90 ára) |
Skóli/hefð: | Rökgreiningarheimspeki |
Helstu ritverk: | Virtues and Vices and Other Essays in Moral Philosophy; Natural Goodness |
Helstu viðfangsefni: | siðfræði |
Markverðar hugmyndir: | dygðafræði, lestarvandinn |
Áhrifavaldar: | Aristóteles, Tómas frá Aquino, Ludwig Wittgenstein, G.E.M. Anscombe, Thomas Nagel |
Hafði áhrif á: | Bernard Williams, Rosalind Hursthouse, John McDowell |
Philippa Ruth Foot (fædd Bosanquet) (3. október 1920 – 3. október 2010) var breskur heimspekingur. Hún er þekktust fyrir framlag sitt til siðfræði. Hún var ásamt G.E.M. Anscombe einn af upphafsmönnum nútíma dygðafræði í siðfræði. Líta má á verk hennar sem tilraun til þess að nútímavæða aristótelíska heimspeki; til að sýna að hana megi laga að málefnum samtímans og þar meðað hún sé samkeppnishæf við vinsæla strauma í nútímasiðfræði, svo sem skyldusiðfræði og nytjastefnu.
Foot var fædd og uppalin í Bretlandi. Hún var barnabarn Grovers Cleveland, forseta Bandaríkjanna. Hún hóf feril sinn í heimspeki sem nemandi og síðar kennari við Somerville College, Oxford. Árum saman gegndi Foot stöðu Griffin Professor of Philosophy við Kaliforníuháskóla Los Angeles.
© MMXXIII Rich X Search. We shall prevail. All rights reserved. Rich X Search