Jens Stoltenberg (f. 16. mars 1959) gegndi embætti forsætisráðherra Noregs frá 17. október 2005 til 16. október 2013. Í mars árið 2014 var Stoltenberg síðan skipaður framkvæmdastjóri NATO og tók formlega við þeirri stöðu 1. október 2014 og gegnir henni enn í dag. Þann 28. mars árið 2019 var embættistíð Stoltenbergs framlengd til ársins 2022. Í mars 2022 var ákveðið að framlengja embættistíð Stoltenbergs um eitt ár í viðbót vegna aukins vígbúnaðar í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu.
© MMXXIII Rich X Search. We shall prevail. All rights reserved. Rich X Search