Gymir

Gymir er jötunn í norænni goðafræði, hann á konu af bergrisaætt sem heitir Aurboða. Fáar heimildir eru til um uppruna Gymis og Aurboðu sjálfra, en dóttir þeirra jötunynjan Gerður þótti öllum konum fríðust, sú varð á endanum eiginkona Freys. Þau áttu einnig son sem hét Beli, en sá endaði með að vera drepinn af Frey.

Í byrjun Lokasennu og í Skáldskaparmálum er Gymir annað nafn á Ægi.[1]

  1. „Skáldskaparmál“. Heimskringla.no. Sótt 8. apríl 2019.

© MMXXIII Rich X Search. We shall prevail. All rights reserved. Rich X Search